Flýtilyklar
01. fundur hússtjórnar Dalsmynni
Þriðjudaginn 21.02.2006 kl. 20.30 var haldinn fundur í nýskipaðri hússtjórn Dalsmynnis. Hússtjórnina skipa: Guðrún Sigurjónsdóttir, Gerður Garðarsdóttir og Sigurður Ingi Guðmundsson.
Oddviti, Björn Magnússon, boðaði, setti fund og stýrði.
Guðrún hreppti formennsku, Ingi ritarastöðu og Gerður húsvörslu.
Björn kvaðst ekki vera með neitt sérstakt erindisbréf og skildi hússtjórn semja húsreglur. Rætt var um þá möguleika í ferðaþjónustu sem húsið hefði. Björn ákvað að stofna reikning á nafni sveitarfélags sem húsvörður hefði til reksturs hússins.
Þegar hér var komið hafði Björn fengið sig fullsaddan af pönnukökum og ostum frá Guðrúnu, þakkaði fyrir sig og fór.
Farið var í ferðalag um húsið og samþykkt að fela Gerði athugun á kostnaði við músakassa utanhúss. Ákveðið var að hittast fljótlega til að semja húsreglur og verðskrá. Skal stjórn í millitíðinni kynna sér verðlag á öðrum sambærilegum stöðum og hafa til hliðsjónar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið.
Sig. Ingi