Flýtilyklar
01. fundur hreppsnefndar
Mánudaginn 2. janúar 2006 kom nýkjörin sveitarstjón Húnavatnshrepps saman á sinn fyrsta fund, sem haldinn var á Húnavöllum. Allir
aðalmenn mættu,
4 fulltrúar af A- lista Framtíðar og 3 af E- lista Nýs afls.
Björn Magnússon boðaði til fundarins sem aldursforseti sveitarstjórnar.
Björn setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
Þá var eftirfarandi gert.
Kosinn var oddviti sveitarfélagsins. Björn Magnússon hlaut 4 atkv. En Ólöf Birna Björnsdóttir 3 atkv.
Oddviti stjórnaði fundi og sagði fundi framhaldið, og lagði því næst fram dagskrá eftir að fundurinn hafði samþykkt hana
samhljóða.
Dagskrá.
1. Kosning varaoddvita.
2. Samþykkt á nafni nýs sveitarfélags.
3. Drög að samþykktum sveitarfélagsins.
4. Erindi frá hreppsnefnd Áshrepps.
5. Skrifstofa og starfsmannahald.
6. Önnur mál.
1. Kosning varaoddvita.
Jón Gíslason hlaut 4 atkv. og Ólöf Birna Björnsdóttir hlaut 3 atkv.
2. Samþykkt á nafni nýs sveitarfélags.
Oddviti lagði til að samþykkt væri nafnið Húnavatnshreppur.
Tillagan var samþykkt með öllum atkvæðum
3. Drög að samþykktum sveitarfélagsins.
Drög að samþykktum sveitarfélagsins voru yfirfarin og rædd. Birni Magnússyni og Ólöfu Birnu var falið að yfirfara samþykktir
sveitarfélagsins fyrir næstu umræðu.
4. Erindi frá hreppsnefnd Áshrepps.
Oddviti kynnti erindi frá hreppsnefnd Áshrepps þar sem óskað er viðræðna um að sameina Áshrepp og Húnavatnshrepp.
Kosnir voru 2 aðalmenn og tveir varamenn í sameiningarnefnd.
Aðalmaður: Björn Magnússon. Varamaður: Tryggvi Jónsson
Aðalmaður: Birgir Ingþórsson. Varamaður: Brynjólfur Friðriksson
5. Skrifstofa og starfsmannahald.
Rætt var um starfsmannahald og uppgjör sveitarfélagana vegna síðasta árs. Einnig staðsetningu skrifstofu. Ákveðið var að ræða
við Þorleif Ingvarsson að starfa fyrir sveitarfélagið og fara með prókúru þess. Oddvita var falið að ræða um kaup og kjör
við hann. Skrifstofan verður á Húnavöllum og mun oddviti starfa þar á vissum tímum sem auglýstir verða.
Leitað verður til fyrrverandi oddvita að ljúka bókhaldi hreppana fyrir árið 2005.
6. Önnur mál.
a) Oddviti dreifði til kynningar leiðbeiningum v/ móttöku sorps.
b) Kynning á plaggi Samstöðu, sem er ný staða vegna nýgerðs kjarasamnings Eflingar og Reykjavíkurborgar.
c) Ákveðið var að senda dómsmálaráðherra bréf vegna forkastanlegra vinnubragða sýslumannsembætta, við koningarnar 10. des
síðast liðin.
Fleira ekki rætt.
Fundi slitið.
Björn Magnússon (sign), Tryggvi Jónsson (sign), Jóhanna E. Pálmadóttir (sign), Jón Gíslason (sign), Ólöf Birna
Björnsdóttir (sign), Birgir Ingþórsson (sign) og Brynjólfur Friðriksson (sign) .