Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

01. fundur fræðslunefndar

Miðvikudagur 28.06.2006.

Fræðslunefndarfundur að Húnavöllum samkvæmt boði aldursforseta.

Mæting samkvæmt undirritun.

Pétur setti fund og bauð fundarmenn velkomna, nýja sem gamla.
Pétur lagði til að Ægir verði formaður, Kristín varaformaður og Þóra ritari. Það var samþykkt.

Fyrir fundinum liggur að veita umsögn um ráðningu skólaliða.
Þrjár umsóknir hafa borist. Umsækjendur eru:
Arna María Ævarsdóttir,
Eva Therese Thörn,
Sveinfríður U. Halldórsdóttir.
Fræðslunefnd mælir með umsókn Sveinfríðar.

Lögð var fram ályktun sem Aðalfundur Foreldrafélags Húnavallaskóla beindi til Byggðasamlags um Húnavallaskóla í apríl 2006 um gjaldfrjálsa danskennslu sem hluta af námi. Byggðasamlagið óskar eftir umsögn fræðslunefndar.

Fram kom hjá skólastjóra að danskennarinn telji að kostnaðurinn muni tvöfaldast ef sveitarfélagið greiði þetta að fullu (5-600 þús.)

Fræðslunefnd samþykkir eftirfarandi vegna ályktunar Foreldrafélagsins um danskennslu:

Fræðslunefnd Húnavallaskóla leggur áherslu á mikilvægi danskennslu í skólastarfinu og styður að ályktun Aðalfundar Foreldrafélagsins frá 26.04.2006 verði tekin til gagngerrar skoðunar með það að markmiði að þátttaka í danskennslunni verði sem mest og sem kostnaðarminnst fyrir nemendur.

 
Önnur mál.

Þorkell sagði frá því að Kristín Jóna og Magdalena hafi fengið inni í réttindanám frá KHÍ. og Háskólanum á Akureyri. Ánægja með það. Þær stefna á nám við KHÍ.

Árangur samræmdra prófa í 10. bekk, Húnavallaskóli kom vel út úr þeim.
Einnig sagði Þorkell frá því að Rúnar Aðalbjörn Pétursson fékk bókaverðlaun send frá Hinu íslenska bókmenntafélagi og Menntamálaráðuneytinu fyrir framúrskarandi námsárangur á grunnskólaprófi.

Fleira ekki gert.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið.
 
Þóra Sverrisdóttir
Ægir Sigurgeirsson
Kristín Rós Sigurðardóttir
Pétur Pétursson
Þorkell Ingimarsson
 
 
 
 
 
Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 22.09.2006

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 13
Samtals: 184981

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning