Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

0.jpg1.jpg10.jpg11.jpg12.jpg13.jpg14.jpg15.jpg2.jpg3.jpg4.jpg5.jpg6.jpg7.jpg8.jpg9.jpg

 

Fréttir

Frá Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hefur í vetur æft dagskrá í tali og tónum, sem  tileinkuð er Birni Pálssyni, bónda og alþingismanni frá Ytri Löngumýri í Blöndudal.

Dagskráin er sambland að gamni og alvöru.

Sýningar verða:

Í Blönduóskirkju fimmtudaginn 11 mars. kl. 20.30
Í félagsheimilinu á Hvammstanga 12. mars. kl. 20.30
Í Miðgarði Skagafirði 18 mars. kl. 20.30

Handritshöfundur:  Jóhanna H Halldórsdóttir
Söngstjóri: Sveinn Árnason
Undirleikarar:  Elvar Ingi Jóhannesson og hljómsveit Skarphéðins Einarssonar.

Miðaverð er kr. 2.500

Kórfélagar.

Íbúar Húnavatnshrepps athugið.

 Sú breyting hefur tekið gildi að nú er Húnavatnshreppur ein kjördeild og kjörstaður er Húnavallaskóli
Því eru kjördeildir í Húnaveri og á Hofi lagðar niður og fulltrúar í undirkjörstjórnum leystir frá störfum.

 Varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 6 mars nk. þá mun yfirkjörstjórn Húnavatnshrepps sjá um framkvæmd kosningarinnar en hana skipa Ragnar Bjarnason, Gréta Björnsdóttir og Erla Hafsteinsdóttir.

Kjörfundur hefst kl. 11.00 og áætlað er að honum ljúki kl. 19.00.

 Kaffiveitingar verða á kjörstað.

Sveitarstjóri Húnavatnshrepps.

Þjóðaratkvæðagreiðsla 6. mars.

Íbúar í Húnavatnshreppi.

 

Kjörfundur í Húnavatnshreppi vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010, verður á Húnavöllum.

Kjörfundur hefst kl. 11.00  og stefnt er að því að ljúka kjörfundi kl. 19.00.

 Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins á Húnavöllum frá 27. febrúar til kjördags.

 

Formaður kjörstjórnar

Ragnar Bjarnason


Viðtalstímar.

Vegna auglýsingar um verkefnisstyrki verður Menningarfulltrúi Norðurlands vestra með eftirfarandi viðtalstíma.

Miðvikudaginn 3. mars.

kl. 11.00-12.00      Bókasafni Húnavallaskóla
kl. 13.00-16.00      Skrifstofu Blönduósbæjar
kl. 16.30-17.00      Skrifstofu Menningarráðs, Skagaströnd.

Ingibergur Guðmundsson
Menningarfulltrúi Norðurlands vestra.

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 42
Samtals: 173704

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning