Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

0.jpg1.jpg10.jpg11.jpg12.jpg13.jpg14.jpg15.jpg2.jpg3.jpg4.jpg5.jpg6.jpg7.jpg8.jpg9.jpg

Fréttir

Auglýsing - umsjónaraðili með ferðaþjónustu


Áfangi, gistiskáli við Kjalveg

Húnavatnshreppur óskar eftir að ráða umsjónaraðila með ferðaþjónustu í Áfangaskála sumarið 2012. Um er að ræða tímabilið frá 20. júní  til 20. ágúst. 

Svefnpláss er fyrir 32 í 8 herbergjum. Matsalur fyrir 40 manns, setustofa og heitur pottur.

Góð aðstaða er fyrir hesta, hesthús og tvö afgirt hólf.

Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Húnavatnshrepps og í síma 452 4661.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Húnavatnshrepps á Húnavöllum, eða á netfangið jens@emax.is

Umsóknarfrestur er til 14. mars 2012.

Sveitarstjóri Húnavatnshrepps

                      

 


Söfnun á rúlluplasti

Þriðjudaginn 28. febrúar nk fer fram söfnun á rúlluplasti í Húnavatnshreppi.

Þeir aðilar sem ætla að koma rúlluplasti á söfnunaraðila verða að gæta þess að plastið sé tilbúið til flutnings og hæft til endurvinnslu. Plastið verður að vera þokkalega hreint og í því mega ekki vera aðskotahlutir s.s. net eða heyafgangar.

Þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu vinsamlega tilkynni það til skrifstofu Húnavatnshrepps í síma 452-4660 / 452-4661 eða á netföngin hunavatnshreppur@emax.is eða jens@emax.is fyrir þriðjudaginn 28. febrúar.

Sveitarstjóri

Góðverkadagurinn



Dagana 20. – 24. febrúar nk. verða Góðverkadagar haldnir um land allt undir yfirskriftinni „Góðverk dagsins“ .

Góðverkadagarnir eru ný útfærsla á nær aldagamalli hefð og loforði skáta um að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag.

Verkefnið miðast við að árlega verði haldnir sérstakir Góðverkadagar seinnipart febrúarmánaðar með virkri þátttöku allra landsmanna. 

  • Markmiðið með verkefninu „Góðverk dagsins“ er að hvetja landsmenn til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk.


Smellið á myndina til að kynna ykkur málið nánar - hvetjum alla til að gera góðverk :)


Óbyggðanefnd

Hér má sjá bréf er barst Húnavatnshreppi frá Óbyggðanefnd vegna frests Fjármálaráðherra til að lýsa hugsanlegum þjóðlendurkröfum á Norðvesturlandi, Húnavatnssýslu vestan Blöndu ásamt Skaga.

Smellið hér til að kynna ykkur efni bréfsins.

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 5
Samtals: 252237

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning