Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Vatnsdalsá

Upplýsingar um veiðileyfi er hægt að nálgast á eftirfarandi slóð:

http://vatndalsa.is

Vatnsdalsá er dragá, mynduð úr kvíslum á víðlendum heiðaflákum, Grímstunguheiði og Haukagilsheiði. En hún er einnig að hluta lindá, sem er ólkt húnvetnskum ám ef undan er skilin Seyðisá sem fellur til Blöndu. Það er Strangakvísl, efsti stofn Vatnsdalsár, sem leggur henni til lindavatnið. Hún kemur undan Krákshrauni suður á Stórasandi og rennur 25 km beint til norðurs, þá sameinast hún Miðkvísl og Gellakvísl og heitir úr því Vantdalsá. Báðar spretta kvíslarnar upp á norðanverðum Stórasandi, Fellakvísl austast, vestan undir Sauðafelli. Í hana rennur Kólkukvísl úr Kókluflóa. Milli þessara kvísla er svonefnt Dalskvíslaland. Eyðibýlið Réttarhóll er austan Fellskvíslar, skammt frá ármótum kvíslanna þriggja, Ströngukvíslar, Miðkvíslar og Fellakvíslar. Þar bjó Björn Eysteinsson (1848-1939).

Vestan undir Bótarfelli dýpkar farvegur Vatnsdalsár og litlu norðar steypist hún í stórfenglegu gljúfri og mörgum fossum niður í Vatnsdal. Á árunum 1945-1965 var rætt um að veita Blöndu vestur Kólkuflóa og virkja hana og Vatnsdalsá sameiginlega í um 400 m falli niður í Vatnsdal. Efsti fossinn á fjallsbrún heitir Skínandi og ber nafn með réttu. Nokkru neðar eru Kerafoss og Rjúkandi. Neðarlega í gljúfrinu, hjá Glámsþúfu, er Skessufoss. Niðri undir bænum Foræludal er Dalfoss, mikill foss, og Stekkjarfoss. Hjá Forsæludal er meðalrennsli Vatnsdalsár 8,5 m3/s og vatnasvið 450 km2. Á vetrum fer mánaðarrennslið vart undir 5 m3/s og gætir þar lindastofnsins saunnan frá Krákshrauni.

Eftir að komið er niður á sléttlendið bætast í Vatnsdalsá nokkrar smáár, einkum að vestan. Álftaskálará (Álka) með 290 km2 vatnasviði er þeirra langstærst. Vatnsdalur, brekkna milli, er marflatt og grösugt engjaland. Í stórum flóðum fer allt láglendið undir vatn. Þetta er eðlileg vatnsmyndun ofan við Vatnsdalshóla.

Austan hólanna hafði Vatnsdalsá gert sér farveg. Hin mikla Bjarnastaðaskriða, sem féll 8. október 1720 fyllti upp farveginn með stórgrýti og þá myndaðist stöðuvatn þar fyrir ofan sem heitir Flóðið. Vatnsfallið skiptir um nafn um Flóðið; úr því fellur Hnausakvísl. Þarna er vatnasviðið 993 km2. Hnausakvísl er 7 km að lengd og fellur til sjávar í Húnaós. Þar er vatnasviðið 1170 km2 og lengdin frá upptökum Stöngukvíslar 77 km.

Í Vatnsdælasögu segir svo: "Þess er getið, að veiður mikil var í Vatnsdalsá, bæði laxa og annarra fiska." síðar segir Vatnsdæla: "Nú kom maður heim til Hofs hlaupandi og sagði Ingimundi, að í óefni var komið og þeir börðust um ána þvera, "og er búi þinn fæstum líkur." Ingimundu mælti: "Búið hest minn, og vil ég til ríða." Hann var þá gamall og nær blindur. Hafði hann og þá af höndum látið öll fjárforráð og svo bú. Sveinn var honum fenginn til fylgdar. Ingimundur var í blárri kápu. Sveinninn leiddi hestinn undir honum; og er þeir komu á árakkann, þá sjá synir hans hann. Þorseinn mælti: "Kominn er faðir vor, og látum hefjast undan, og mun hann ætla, at vér munum gera vilja hans, en hræddur er ég um komu hans" ok bað nú Jökul hefta sig.

Ingimundur reið á ána og mælti: "Gakk úr ánni, Hrolleifur, og hygg að, hvað þér hæfir." Og er Hrolleifur sá hann, skaut hann til hans spjóti, og kom á hann miðjan. Og er hann fékk lagið, reið hann aftur að bakkanum og mælti: "Þú sveinn, fylg mér heim."

Þótt barist hafi verið með grjóti og lagvopnum að fornu um veiðina í Vatnsdalsá og á síðari tímum deilt hart hefur Vatnsdalsá ætið varðveitt sinn fisk. Hún er í flokki fremstu veiðiáa landsins, bæði hvað varðar lax og silung.

(Landið þitt Ísland, Þorsteinn Jóepsson Steindór Steindórsson, 1980)

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning