Veiði er seld að Mosfelli við sunnanvert Svínavatn. Sími þar er 452-4065
Svínavatn er annað stærsta stöðuvatn í Húnaþingi, næst á eftir Hópinu. Er Svínavatn 11.78 km2, liðlega 10 km langt og 1-2 km breitt, mjóst um miðju. Liggur vatnið í 123 m hæð y.f. Umhverfis vatnið er byggð í Húnavatnshreppi. Í vatninu er töluverð silungsveiði. Afrennsli vatnsins er Fremri-Laxá sem rennur í Laxárvatn en yfirborð þess er 36 m lægra en yfirborð Svínavatns.
Austan Svínavatns, í landi Sólheima, er Beigaðarhóll. Þar á Beigaður, göltur Ingimundar gamla Þorsteinssonar, landnámsmanns á Hofi í Vatnsdal, að hafa tekið land og sprungið þegar han svam yfir vatnið og er það þó allra mjóst á þeim stað, milli Kúluness og Sólheimalands, vart meira en 500 m.
Kunnugt er um að menn hafi drukknað niður um ís á Svínavatni. Meðal þeirra var séra Jón Jónsson (1772-1817) á Auðkúlu. Dóu nokkrir Auðkúluprestar voveifilega en ekki munu aðrir en séra Jón hafa drukknað í vatninu. Hins vegar var næsta útbreidd hjátrú að óvættur í Svínavatni yrði Kúluprestum að fjörtjóni.
(Landið þitt Ísland, Þorsteinn Jósepsson Steindór Steindórsson, 1980)