Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Stóra Giljá

 

Ferðaþjónusta bænda

Netfang: erlendurge@simnet.is

Sími: 452-4294

 

 

Bændagisting, Stóra Giljá.

Tvö gistihús eru á staðnum. Hvort um sig fyrir 6 manns. Svefnloft með dýnum er í öðru húsinu.

Í báðum húsum eru tvö herbergi, snyrting með sturtu og eldhúskrókur með kæliskáp og búnaði fyrir 6 manns, stofa með góðum húsgögnum, útvarpi og sjónvarpi.

Hitaveita er í báðum húsum og úti við eru heitir pottar, gasgrill ásamt útistólum og borðum.

Víðsýnt er og sér til margra merkra staða héraðsins eins og t.d. Þingeyra, Vatnsdalshóla, Borgarvirkis og Hvítserkur sést út með Vatnsnesinu. Einnig sér til Þrístapa þar sem síðasta aftaka á Íslandi fór fram. Tröllakirkja á Holtavörðuheiði blasir við í suðvestri og Reykjaneshyrna í Árneshreppi á Ströndum, í norðvestri. Spákonufell sést í norðri ásamt mörgum öðrum fallegum ónefndu stöðum.

Merkt gönguleið er upp með Giljárgili. Falleg leið og auðveld.

Gullsteinn er 700 metra frá húsunum en þar sem tók fyrsti Íslendingurinn kristna trú.

Stutt er í sundlaug á Húnavöllum og á Blönduósi en þar er líka Golfvöllur. Merkt gönguleið er upp með Giljárgili, sem hefur að geyma skjólríka og fallega staði þar sem fossarnir hjala við tæra hylji og flúðir. Í gilinu er rafstöð frá árinu 1930 í nálægð við helli.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning