Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Húnaver

Félagsheimilið Húnaver er staðsett á mótum Svartárdals og Langadals  þar sem þjóðvegur 1 liggur upp Vatnsskarð. Húnaver var vígt 1957.

Í Húnaveri er boðið upp á margvíslega þjónustu við ferðamenn, bæði einstaklinga og hópa. Í Húnaveri  er  verslun , veitingasalur og svefnpokapláss. Hægt er að panta morgunverðarhlaðborð og heitar máltíðir. Einnig er við Húnaver mjög góð tjaldstæði með rafmagni og snyrtingum.


Símanúmer Húnavers eru 452-7110 og netfang hunaver@visir.is.

Fyrir hönd hreppsnefndar Húnavatnshrepps sitja þrír fulltrúar í hússtjórn Húnavers og þrír til vara.

 

Aðalmenn:

Pétur Pétursson

Ingibjörg Sigurðardóttir

Guðmunda s. Guðmundsdóttir

 

Varamenn:

Björn Magnússon

Kristín Pálsdóttir

Brynjólfur Friðriksson

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning