Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Húnavatn

Veiðileyfi í silungasvæði Vatnsdalsár og Húnavatns er hægt að fá hjá

Magnúsi Ólafssyni sími: 452-4495, netfang: mao@centrum.is

Húnavatn er stöðuvatn í Þingi. Húnavatn er langt og mjótt en svo grunnt að víða eru vöð á því. Í það rennur Hnausakvísl (Vatnsdalsá) en afrennsli vatnsins er Húnaós. Í Vatnsdælasögu segir frá því að Ingimundur gamli fann birnu og tvo húna á vatninu og nefndi það því Húnavatn. Síðar fór hann með bjarndýrin til Noregs og gaf þau Haraldi konungi hárfagra en þáði af honum skipið Stíganda. Hann "kom báðum skipunum í Húnavatnsós og gaf þar öll örnefni, er síðan hafa haldist. Þar heitir Stígandahróf, er hann var upp settur." Stígandahróf þekkja menn enn og sér þar fyrir tóttum í Búðatanga, í beinni stefnu milli Þingeyrakirkju og bæjarins á Akri.

Fram með Húnavatni liggja geysivíðlendar flæðiengjar, Eylendið, og heyra þær til mörgum jörðum en stórar spildur þess hafa nú verið þurrkaðar til túnræktar.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning