Hópið eða Miðhóp. Stöðuvatn inn af Húnafirði. Í því gætir flóðs og jöru og er það því misstórt eftir sjávarföllum eða 29 til 44 km2. Áður fyrr, fyrir virkjanir, taldist það fimmta stærsta stöðuvatn á Íslandi.
Þirngeyrarsandi, 3-5 km breiður, skilur Hópið frá hafinu. Langt og mjótt sandrif, Þingeyrarrif, gengur austan frá Þingeyrum langleiðis suðvestur yfir Hópið. Hægt er að ríða Hópið af Þingeyrasandi og taka land í Vaðhvammi undir Myrkubjörgum. Afrennsli Hópsins er Bjargaós. Í honum er mikil lax- og silungsveiði.
(Landið þitt Ísland, Þorsteinn Jósepsson Steindór Steindórsson, 1980)