Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Galtará

Galtarárskáli er við Galtará.

Galtará er bergvatnsá á Eyvindarstaðaheiði. Galtará er fremur vatnslítil. Hún kemur upp í Galtarárdrögum og fellur í Blöndu. Fræg verður Galtará vegna kvæðis Jónasar Hallgrímssonar, Ferðaloka. En við ána mun hann og samferðamenn hans hafa haft náttstað. Ekki veður nú sagt með vissu hvar Jónas greiddi ástmey sinni lokka en ætla má að áningarstaðurinn hafi verið þar sem Skagfirðingavegur liggur yfir Galtarárdrög. En lengi mun það geymast að:

Greiddi eg þér lokka

við Galtará

vel og vandlega.

Brosa blómvarir,

blika sjónstjörnur,

roðnar heitur hlýr.

(Landið þitt Ísland, Þorsteinn Jósepsson Steindór Steindórsson 1980)

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning