Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Blönduóskirkja

Blönduóskirkja - saga.


Blönduós er kaupstaður er stendur við austanverðan Húnafjörð, við ósa Blöndu. Er það byggt úr landi jarðanna Hjaltabakka og Hnjúka vestan árinnar og Ennis að austan. Blönduós er kaupstaður með tveimur lögbýlum Hnjúkahlíð og Kleifum.

Blönduós hefur þá sérstöðu að standa við ósa jökulár. Víða er í heimildum getið um komu kaupskipa þangað. Svo segir í Vatnsdæla sögu: "Þeir komu út sumar í Blönduárósi." Einnig gæti örnefnið Skipagil, sem var til í bakkanum austan árinnar, bent til hins sama.

Gamla kirkjan á Blönduósi stendur sunnan ár. Er hún fyrsta kirkja á staðnum, snotur timburkirkja, flutt frá Hjaltabakka og vígð 1895. Í henni er altaristafla með mynd af Emmausgöngunni, eftir Jóhannes Sveinsson Kjarval. Prestur hefur setið á Blönduósi frá 1968. Þjónar hann Þingeyraprestakalli.

Kaupstaðurinn stendur að mestu leyti niðri í kvos kringum árósinn. Brekkurnar, er liggja í kring, hafa örnefni eins og Skúlahorn að norðan og Háabrekka að sunnan, þar er útsýnisskífa, en Dýhóll austar. Þjóðvegir mætast á Blönduósi. Hringvegurinn liggur um kauptúnið, Þingbraut að sunnan yfir brúna á Blöndu og Langadalsvegur áfram fram dalinn. Skagavegur liggur út Skagaströnd en Svínvetningabraut til suðausturs fram hjá Kleifum upp úr kauptúninu. Blöndubrú var byggð á árunum 1962-1963 og er fyrsta brú úr strengjasteypu sem byggð var yfir stórá hér á landi. Áður var stálgrindabrú yfir Blöndu á sama stað er tekin var í notkun 1897.

Flug hófst 1971 um lítinn flugvöll á Ennismelum en nú er notaður flugvöllur sunnan Blöndu, austan þjóðvegarins, er tekin var í notkun 1973. Fyrsti flugvöllur í héraðinu var á Akursmelum.

(Landið þitt Ísland, Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson, 1980).


Íbúar Húnavatnshrepps norðan Torfalækjar eiga sókn að Blönduóskirkju. Nýja kirkjan á Blönduósi stendur á hæð norðan Blöndu. Kirkjuna hannaði Maggi Jónsson frá Kagaðarhóli í Húnavatnshreppi.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning