Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Blanda

Upplýsingar um veiðileyfi í Blöndu er á eftirfarnandi slóð:

 http://lax-a.is/islenska/island/stangveiði/laxveidi-full-thjonusta/

 

Blanda er jökulá sem á upptök í mörgum kvíslum undan Hofsjökli. Er syðsta kvíslin fast norðan við Blágnípu. Norðan hennar gengur fram skriðjökull, Blöndujökull. Blanda er með lengsu ám landsins, 125 km á lengd, og að sama skapi vatnsmikil, vatnasvið 2370 km2. Hún var farin á ferjum og hestum áður en hún var brúuð og á ís á vetrum. Vitað er um að sem næst 200 manns hafa farist í henni. Við Blöndu stendur kaupstaðurinn Blönduós þar sem hún fellur til sjávar við austanverðan Húnafjörð. Í henni er laxveiði.

Framan við byggð fellur Blanda í miklum gljúfrum og djúpum, 18 km leið. Heita þau Blöndugil. Margar þverár falla í Blöndu, Svartakvísl, Strangakvísl og Svartá að austan, Seyðisá og Sandá að vestan. Allmörg vöð voru á Blöndu, Blönduvöð inni á hálendi og Hrafnseyrarvað hjá Björnólfsstöðum kunnust. Lögferjur voru fyrrum á Mjósundi sunnan Holtastaða og undan Brúarhlíð (Syðra-Tungukoti). Kláfferjan var á Blöndu milli Brandsstaða og Blöndudalshóla, fram um 1950.

Tvær brýr eru á Blöndu, önnur hjá Blönduósi en hin í neðanverðum Blöndudal, niður undan Syðri-Löngumýri.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning