Bergstaðakirkja - saga.

Bergsstaðir eru bær í Svartárdal, kirkjustaður og prestssetur fram á 20.öld .
Á Bergsstöðum var kirkja helguð Ólafi helga Noregskonungi og Þorláki biskupi Þórhallssyni í kaþólskum sið. Útkirkja var í Bólsstaðarhlíð og frá 1907 á Holtastöðum. Prestssetrið var flutt til Æsustaða 1926. Nú heyra Bergsstaðir til Bólsstaðarhlíðar. Núverandi kirkja var reist 1883.
(Landið þitt Ísland, Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson 1980) og (Íslenska Vegahandbókin 1998).