Danskennsla fyrir unga sem aldna
fimmtudagur 18.mars 2010 - Lestrar 634 - Athugasemdir (0)

Mánudaginn 22. mars hefst hin árlega danskennsla við Húnavallaskóla þegar Hinrik Norðfjörð Valsson, danskennari kemur til
okkar.
Kennslan verður með hefðbundnum hætti og nemendum skipt upp í hópa sem fylgjast að í dansinum. Athygli er vakin á því
að nú verður sú nýbreytni að fullorðna fólkinu í skólaumdæminu gefst kostur á að sækja fjögur
kvöldnámskeið. Námskeiðin hefjast á mánudagskvöldið klukkan 20:00 og eru allir velkomnir. Kostnaður fyrir parið er krónur
10.000 fyrir þessi fjögur kvöld. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram, bara mæta á staðinn.