Jónsmessuganga
laugardagur 24.júní 2006 - Lestrar 788 - Athugasemdir (0)
Farið verður í gönguferð hér í Vatnsdal laugardaginn 24. júni. Um er að ræða létta gönguferð í fallegu umhverfi.
Boðið er upp á grill uppi á fjallinu og gistingu ef fólk vill. Verð á grillmat er 1500 á mann. Er ekki orðið tímabært að koma
með saumaklúbbinn? Allir velkomnir.
Laugardaginn 24. júní n.k. kl. 21.00 verður lagt af stað frá Hofi í Vatnsdal. Gengið verður upp Múlann. Boðið verður upp á fagurt sólsetur, grill og gæðaútsýni.
Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Ferðaþjónustunni Hofi í síma 452-4077 eða hof@simnet.is