Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

0.jpg1.jpg10.jpg11.jpg12.jpg13.jpg14.jpg15.jpg2.jpg3.jpg4.jpg5.jpg6.jpg7.jpg8.jpg9.jpg

Ferðaþjónusta

Húnavatnshreppur er kjörsvæði fyrir ferðalanga.  Margt skemmtilegt að skoða og stórbrotið landslag sem lætur engann ósnortinn.

Hér að neðan eru 2 síður sem gott er að skoða áður en lagt er af stað í ferðalag.

Fréttir

Áfangi ,, Fram í heiðanna ró´´

Áfangaskáli á Auðkúluheiði verður opnaður laugardaginn 21. júní næstkomandi.Þar verður starfrækt ferðaþjónusta í sumar, gisting í svefnpokaplássi í fjögra manna herbergjum fyrir 32 með afnotum af eldhúsi.
Veitingasala, heitur pottur, tjaldstæði og sérstaklega góð aðstaða fyrir hestamenn, á staðnum eru hesthús, rétt og hólf með sjálfbrynningum og heysala fyrir mikinn fjölda af hrossum.

Þær Kristín  I. Marteinsdóttir og Þuríður H. Guðbrandsdóttir, sem eru gestum Áfangaskála að góðu kunnar frá fyrri árum, munu skipta með sér reksti ferðaþjónustunnar í sumar til 24. ágúst. 
Eftir það geta einstaklingar eða hópar tekið skálann á leigu eftir samkomulagi. Allir sem vilja njóta útivistar og ferðast um hálendið á hestum, hjólum bílum eða tveimur jafnfljótum eru velkomnir í Áfangaskála.
Pantanir eru í síma 8690334
Sjáumst hress í sumar

Rekstrarstjórar Áfanga,  Kristín og Þuríður.

Sveitarstjóri Húnavatnshrepps.
 


Gönguferð í Vatnsdal

 

Laugardaginn 28. júlí stendur Ferðaþjónustan áHofi í Vatnsdal fyrir gönguferð með Vatnsdalsárgili.
Þar eru margir fossar, hver öðrum fallegri. Má þar nefna Skínanda,Kerafoss, Skessufoss og Dalsfoss. Þetta er nokkurra klukkutíma ganga, en ekki er mikill hæðarmunur á gönguleiðinni.
Að mestu er gengið eftirfjárgötum á gilbarminum Mæting er á Hofi kl. 10.00 , og þaðan verður ekið að Forsæludal.   Að göngu lokinni verðurgrillað á Hofi og hægt verður að fara í heita pottinn, og jafnvel gista. 

Upplýsingar og skráning í síma 4524077 eða á hof@simnet.is

Smellið á Lesa meira til að sjá myndir.

 
Lesa meira

Jónsmessuganga

Farið verður í gönguferð hér í Vatnsdal laugardaginn 24. júni. Um er að ræða létta gönguferð í fallegu umhverfi. Boðið er upp á grill uppi á fjallinu og gistingu ef fólk vill. Verð á grillmat er 1500 á mann. Er ekki orðið tímabært að koma með saumaklúbbinn? Allir velkomnir.
Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning